28 Jul 2008

Po fimmte sal

Það hlítur að vera ánægjulegra að vera veðurfræðingur í öðrum löndum en á Íslandi. Það er örugglega betra fyrir þá sem elska að hafa rétt fyrir sér öllu heldur að vera veðurfræðingar í öðrum löndum en á Íslandi. Hér hefur svo sannarlega staðist að veðrið hefur verið nákvæmlega eins á kortinu sem ég póstaði síðast.

Númm, dregið hefur til tíðinda og er flutningar áætlaðir í fyrramálið. Ég hef að sjálfsögðu fengið mér einkabílstjóra. Planið er þannig að við Aldís og Brynjar mitt nýja uppáhalds fólk byrjum að bera hér niður búslóðina (bús lóðina...bú slóðina..) klukkan stundvíslega 9:00. Eða fyrst fer ég með Örverpið mitt sæta og skemmtilega á leikskólann. Svo þegar við erum búin að einoka lyftuna og hlussast niður með draslið þá förum við Aldís í leiðangur í austurhluta borgarinnr og sækjum bíl sem ég tók á leigu. Hún keyrir. Ég segi til um hvaða götur hún á að keyra. Á meðan hvílir Brynjar því svo komum við aftur og hlöðum bílinn og keyrum eins margar ferðir niðrá (eða ætti ég að segja uppá..vegna óheyrilegs fjölda trappa þarna upp) Englandsveg. Þá affermum við bílinn og Brynjar passar og við förum aftur til baka og náum í meira dót. Númm, klukkan 14 kemur svo lyfta sem ég fann í dag á ásættanlegu verði og kemur til með að vera í sirka 2 tíma og rúlla upp um svalirnar því stærsta og þyngsta..afganginn berum við svo upp. Ef við verðum ekki búin fyrir 4 fáum við pínu extra hjálp frá Arnari Heimi sem hvort eð er á leið framhjá úr vinnunni.

Þannig að þetta er allt að ganga hérna.

4 comments:

Anonymous said...

Jæja væna þá er bara komið að því !! Gangi þér vel Kristín mín.
Knús á Sindrann og þig og bið að að heilsa "uppáhalds" fólkinu,frábært að þau geti hjálpað þér.:)
Ástarkv.Lóa

Anonymous said...

Gasalega líður mér vel með svona samvinnu. Og skipulagið!!! það er nú aldeilis gott.
Stórt knús til Sindra. Nú fæ ég að knúsa Sunnevu á hverju kvöldi.
ástarkveðja til ykkar tveggja og flutningsfólksins. Gangi ykkur vel.

Anonymous said...

Gott gengi í flutningunum - væri sko alveg til í að vera á svæðinu og hjálpa til!

Anonymous said...

hlakka til að heyra af flutningunum ;) jahh... það voru nú nokkur hitamet slegin á Íslandi í dag! Við busluðum alla vega með kalt vatn í garðinum og notuðum mikið af sólarvörn! Sunneva kemur heim líklega hallandi til hægri sökum tregðu við að vera með spennu í toppnum, litla ronja ræningjadóttirin ;)