11 Jun 2007

Allur hitinn..

Það er búið að vera skuggalega heitt. Alveg 28 gráður að mér skilst. Það er svo heitt að ormamaðkarnir þrír geta bara ekki verið úti. Þannig að það er hangið inni í "kuldanum" því það er langt um heitara þar en úti. Ég skundaði í strætó með Helgu í aðra IKEA ferð. Gerði all svakaleg innkaup enda er þá allt komið sem þurfti :) Brunaði þá í Folkeregistrerið og þaðan í Fiskitorfuna í innkaupaferð. Allt á tveimur jafnlöngum nottúrulega, fór bara með tóma barnakerruna.
Annars er lífið bara hreint dejligt. Á kvöldin löfum við Bóndi á svölunum með kertaljós og gerum ekkert. Það er nú alveg nýtt og verður að segjast að það er bara ágætt. Nú er þessi tími búinn að vera eins og ferðalag. Vonandi bráðum fari þetta að lykta eins og venjulegt líf...mannskapur kominn í daglega rútínur, vinnu, skóla og þar fram eftir götunum. Söknum ykkar allra og verið duglega að senda okkur kveðju í kommenta kerfinu. Svo hendi ég inn myndum þegar við erum komin með netið, er enn að ræna af nágranna Helgu.

3 comments:

Anonymous said...

oooo mikið skelfilega sakna ég ykkar og öfunda ykkur að hanga á svölunum og gera ekkert! hlökkum til að koma til ykkar!
kv frá sambýlinu Daggarvöllum ;)

Anonymous said...

alveg nauðsynlegt að þið farið að fá ykkur nettenginginu!! ég kíki svo oft hingað að það er ekki fyndið. Gangi ykkur allt ægilega vel, við hlökkum til að sjá ykkur í júlí!

Anonymous said...

Gaman að fylgjast með ykkur. Gott að heyra að allt gengur vel.Íslensku fánunum hefur vonandi verið flaggað óspart í tilefni 17.júní! Sakna ykkar rosalega, en við skreppum örugglega eitthvað á þessu ári! Það verður flott þegar þið eruð komin með síma og nettengingu.Vona að ég sé í hópi útvaldra :-)
ástarkveðja,
mor