27 Apr 2008

Afmæli dynja á oss

Mamma mín á afmæli á hverju ári 23.apríl.

Ég er ekki alveg viss en minnir að mér hafi verið sagt að þarna hafi Ragnheiður verið 5 ára?? eða 8..mér finnst kjóllin æði.
Svo falleg. Veit heldur ekki hvað þú ert gömul þarna mamma. Kannski 14? Það mætti segja að það sé auðséð hvaðan ég hef hárið.
Útskrifuð hjúkka. Enginn er betri hjúkka en mamma, ég held að allir séu sammála mér. Doldið lík Siggu frænku þarna, en eiginlega bara stundum, mér finnst þau ekkert áberandi lík systkinin en hvert öðru fegurra, sama hvaða röð þau eru talin upp í.
Og í eldhúsinu á Melhaganum. Ég elska Melhagann og mömmu náttúrulega líka. Þarna eru jól eða áramót. Veit ekki hvað ár, en nýja eldhús innréttingin er komin og blússan hlýtur að gefa eitthvað ..1985 eða uppúr. Skyndilega man ég að ég var spurð að því þegar ég var að leika mér við stelpur einhverjar í vesturbænum, nánartiltekið á Tómasarhaga, að sú sem ekki þekkti mig spurði mig þegar ég sagði að ég ætti heima á Melhaga, hvort það væru geitur þar. Skrítnari spurningu er ekki hægt að spyrja, verandi á Tómasarhaga, sem bersýnilega er ekki í sveit og afhverju geit?? afhverju ekki kindur eða beljur..geit..

Til hamingju með daginn um daginn mamma, ég hefði tæknilega séð átt að taka upp þegar krakkarnir hringdu afmælis sönginn, hehe, það var pípandi fyndið.


Svo varða 23.apríl 2001 að eitthvað fór að gerast...Úff maður... ég er ótrúlega ...verri, þegar ég er bomm. 100kg var ég þarna. ..

2 comments:

Anonymous said...

ÞETTA koma á óvart! Ég held 8 ára, veit 13 ára og 21 árs og síðan hef ég ekkert elst............. (held að þessi heimasaumaða blússa, sé samt fyrr en 1985, man það þó alls ekki, kannsk var bara Bryndís til líka) Það var frábært þegar krakkarnir hringdu og sungu afmælissönginn, ekki hægt að lýsa gleðinni og ískrandi kæti í þeim, þessar elskur...........
ástarkveðja,
amma ragna

Anonymous said...

OOo ég hefði viljað heyra afmælissönginn ;) Til hamingju með daginn um daginn elsku mamma mín :* 100kg-myndin minnir mig líka á þegar við stóðu hlið við hlið, kannski daginn áður eða svo og við báðar á tánum - KG tásur eins og blöðrur en BG tásur bara venjulegar :D og ekki skemmir svipurinn á KG á þeirri mynd!!