Svali
Sunneva á leiðinni til Íslands
Gummi líka á leiðinni þangað
Hvammstangi. Fjaran, gott ef ekki sést í Framnes og náttúrlega fleira. Ég fékk heimþrá við að sjá þessar myndir, ekki endilega til Hvammstanga heldur í stemmninguna sem er í náttúrunni á Íslandi, ískalt og hryssingslegt en samt heima.
Höfnin á Hvammstanga, myndasmiður er Bóndinn náttúrulega þar sem ég fór ekkert þangað heldur hann :) Flott mynd finnst mér.
Var búið að segja ykkur söguna af þessu? Bóndinn er sko fasteignar eigandi. Hann og hr.AHG eiga fasteignafélag= þeir eiga fasteign og eru félagar. Án gríns þá keyptu þeir þetta gamla hús fyrir örugglega 2 eða 3 árum, við bjuggum allavegana á Hvammstangabraut 7 þegar þetta var keypt. Þetta er engin smá fasteign, þetta er bara the tip of the iceberg!! sem sést á myndinni, bara inngangurinn, húsið sjálft er fyrir neðan, 13 herbergja glæsivilla með 7 baðherbergjum. Ekki bara eru 13 svefnherbergi heldur líka 2 stofur á hverri hæð og hæðirnar eru 4. Á hverri hæð er eldhús og ekki af verri endanum. Það er fundarsalur á fyrstu hæðinni innaf bókasafninu sem inniheldur allar bækur Halldórs Laxness og lista yfir það hversu oft þær hafa verið lesnar. Í fundarsalnum er stórt hringborð og við það sitja þeir í Fasteignafélaginu, klóra sér í skegginu og drekka latte eða dæet kók og halda leynifundi um það hvenær eigi að halda áfram að grafa undirgöngin sem liggja eiga neðan úr húsinu, undir Hvammstanga með litlum uppgöngum hér og þar svo hægt sé að ná í nauðsynjar, uppgöng í KVH, uppgöng á Núpi svo hægt sé að bjóða Jóa með, uppgöng á Auðunarstöðum svo hægt sé að hvíla sig á ferðalaginu, uppgöng í Borgarnesi svo Jói geti farið í vinnuna og uppgöng í Reykjavík þar sem göngin enda. Göngin hafa fengið nafnið Sundagöng enda eru þau full af vatni og þeir verða að synda það sem þeir ætla, já eða fara á kanóunum.
Það er svo komið pínu haust í Köben. Er ekki merkilegt að búa í stórborg og við húsfótinn er skógur sem ég er oft búin að tala um, en inni í honum heyrast ekki stórborgarhljóð. Ég verð að segja samt að haust í Reykjavík er mikið fallegra, ef ég væri frá Úganda væri haustið örugglega fallegast þar..
2 comments:
Það hafa nú ekki verið sérlega margir fallegir haustdagar hér, það hefur rignt í tvo mánuði :S En sá herrans dagur 7. október í ár var sérlega góður og mun ég setja einhvern daginn einhverjar þeirra yndislegu mynda sem við tókum á Þingvöllum, inn á síðuna okkar. Ég hlakka til að heyra sögu um leynifundi í þessum undirgöngum og ferðalag Jóa til Borgarness ;) Mikið eru börnin sæt og fín og Svali er svo sannarlega sætur ;) Gangi vel með vinnuleit :D
- Spark spark -
já. elskan, vona að þú fáir að verða "blómakona" sem allra fyrst. Svaraðu mér emailinu!!!!!
ástarkveðja, mor
Post a Comment