22 Oct 2007

Atvinna

Ég verð að telja sjálfa mig til þeirra sem vita meira en aðrir, lengra en nef þeirra nær.

Það var ekki í fyrsta skipti að það gerðist núna, en ég var búin að segja að ég ætlaði að vinna í Amagerblomster og ég fór þangað og lét þau hafa ferilskrána mína (glæstur ferill og myndin hafa heillað þau uppúr skónum..) fór í viðtal daginn eftir og fékk vinnuna bara þá..byrja á fimmtudaginn.

Vonandi var ég búin að segja einhverjum að ég ætlaði að fá vinnu þar, annars er þetta svo ótrúlegt. Það er samt satt að þetta gerist oft alveg eins og þegar ég er alltí einu búin að hugsa mikið um Yfirpabba þá hringir hann.

Mig vantar stafræna videokameru til láns í svona mánuð. Ætli ég nái að töfra það fram með hugarorkunni...

www.amagerblomster.dk nýja vinnan mín...vúúúhúúú

6 comments:

Helga said...

til hamingju med thetta Kristin min :) er sko i skolanum thannig og her eru engir islenskir stafir a lyklabordi.. sjaumst nu sem fyrst

aldisojoh said...

Til hamingju með vinnuna... snillingur ertu... :)

Anonymous said...

iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinnilega til hamingju my sweety darling ;)

Unknown said...

Til hamingju með vinnuna

Bústýran said...

Takk fyrir takk fyrir kæru aðdáendur :)

Helga, við skulum bara hittast í kvöld og því ég þekki þá í Muse svo vel þá skal ég biðja þá að taka nokkur lög fyrir okkur....

Helga said...

jahá... það verður sko stuð hjá okkur :)